"Sjaldan ríður ein báran stök"
Áhugaverðar síður
MYNDIR
09.04.2007 13:07:10 / hallrun

Komin með nýtt blogg

Hæ hæ ég er komin með nýtt blogg.

Loksins komin með netið svo ég fer að blogga þar á fullu ;)

bloggið er snati-snati.blogspot.com

já ég veit ekki af hverju ég varð að hafa snati... hehe allavegan sjáumst þar...


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:49:52 / hallrun

Óþægileg bið

Hæ hæ ég er að verða geðveik að bíða þar til ég kemst í próf 20. mars næstkomandi. Ég tek próf á Glettu frá Hofstöðum, Splæsi frá Þúfum og Pílu frá Syðra-Garðshorni. Er ekki búin að þora að gera mikið við þau síðustu daga og það er það erfiðasta. Manni langar alltaf að fínpússa og fínpússa. Miki svakalega verður mikill léttir þegar þessi áfangi er búinn og sá næsti tekur við. En þá byrjum við með fimm þjálfunarhross. Tökum próf á þeim í lok maí. Fer með einn hest frá mér sem er Funi frá Tumabrekku. Óli og Helga eiga hann.

Það er kannski að leisast úr netvandamálinu hjá mér. Það getur verið að ég geti fengið netið aftur í næsta mánuði og þá fer ég að blogga aftur á fullu. Setja inn nýjar myndir þegar ég finn hleðslutækið af myndavélinni minni :evil:

Þar til þá, þá bið ég að heilsa í bili.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 14:55:55 / hallrun

Ég er á lífi

Það gengur vel í verknáminu. Allt brjálað að gera vinn 10 tíma á dag og aðra hverja helgi. Er ekki lengur með netið svo að það verður lélegt blogg hjá mér næstu mánuðina. Vonandi get ég skrifað meira en núna. Er að fara á þorrablót í kvöld með mömmu í Hofsós. Verður svaka fjör.

Hef ekki tíma til að skrifa meira Heyrumst

bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 16:51:08 / hallrun

Komin á skán!

Hæbb ég er mætt til Svíþjóðar! Við komumst alla leið í gær. Við vorum í 20 tíma ferðalagi 8|   púff...

Búin að fara í langan göngutúr með strákunum, mömmu og Hlíf, skoða víðáttuna hér í kring.

Ég hef ekki mikið í fréttum. Það er bara allt rosa gott að vera komin hingað.. Jóhann Ernir er algjör dúlla :D :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 10:31:49 / hallrun

Hallohallo

Hæbs þetta verður besta grín ársins þegar frá líður en er ekkert sérstaklega fyndið núna! En það er nú kanski í lægi að blaðra því út úr sér fyrst þetta reddaðist allt saman á endanum.
Þannig var það að fjögur í morgun þá lögðum við Óli af stað að sækja mömmu og við keyrðum á Keflavíkurflugvöll og bókuðum okkur inn í flug til Kaupmannahafnar. Þar að segja ætluðum að bóka okkur inn!!!!!!! 8| " The computer ses no " Sagði kellingin og við komumst ekkert með :klikk: :cry: Ég starði á hana! " jee bat.. no bat.. jee bat.. no bat..." Við þurftum því að skratta okkur til baka. Aumingja Óli sem er að fara að læra undir massa próf mysti af svefni til einskins.
Það var laust sæti með iceland express en það var geggað sky hæ tölur mar utan við skatta að það réð ekki nokkur maður við það. Það var svo kíkt á Icelandair og við pöntuðum flug í dag sem átti að fara eftir hádegi en fluginu seinkar allavegana um tvo tíma. Núna þarf maður bara að mæta á staðinn aftur og athuga hvort að " The computer ses yees " hehe...


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 13:49:16 / hallrun

Gleðileg jól kæru landsmenn

Gleðileg jól :haha:
Jæja þá er ég að fara að landi brott.
Ég veit ekki hvort ég get bloggað eitthvað á meðan en ég hef svo sem ekki staðið mig vel í því hingað til :|
Ég hélt rollunum mínum í gær. Allt gekk í sögu hjá blessuð hrútunum og jólin eru víst búin hjá þeim í ár :cry:
Ég er að fara að klára að pakka niður.
Gleðileg jól og hafið það sem allra best yfir jólahátíðirnar.
Jólakveðja Hallrún

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 01:04:03 / hallrun

Annar í aðvenntu...

Vá jólin nálgast hratt...
Hjá mér er orðið jólalegt. Ég ætla að gera mikla jólahreingerningu á morgun og gera enn jólalegra. Ég get því notið jólanna hér áður en ég fer út. Ég verð nefninlega úti yfir jólin. Fer 19. des og kem aftur 30. des. Við mamma förum saman til Hlífar um jólin :haha: Hlakka þvílígt til... ...að sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn Jóhann Ernir.

Ég fór í borgina um síðustu helgi. Fór á Bond. Ég mæli með henni. Bond er algjör töffari 8). Ég og Hildur fórum í skoðunarferðir í föndurbúðir. Ég keypti smá föndur. Ætla að fara að föndra þegar allt er orðið fínt og flott hjá mér.

Það fjölgaði í kotinu þegar ég kom aftur norður. Ég er að passa schafer hund, Funa. Hann er 10 mánaða og er algjört krútt. Skoppa tók honum ekki sérlega opnum örmum. Hún hefur alltaf verið mjög skapmikil og afbrigðisöm og því lætur hún hann ekkert vaða uppi þótt hann sé þrisvar sinnum stærri en hún. Hún lék við hann í fyrsta skiptið í dag eða þremur dögum eftir að hann kom.  Afi er nú svo hreinskilinn og það var fyndið hvað hann sagði þegar hann sá hann í fyrsta skiptið.  Huuuuhhhhh... þetta er nú ljótt hræ. Ömmu finnst hann nú ekki ljótur en hún sagði strax að hún ætlaði sko ekki að sjá um hann ef ég færi í burtu. Enda skil ég það, hann er svona þumbi eins og Mídas var þegar hann var 10 mán. Hann ætlar að labba beint en labbar á mann. Þeir eru ekki alvega að ráða við hreyfingarnar sínar svona ungir og stórir, nema hvað Funi er miklu stærri en Mídas svo að hann myndi öruglega skella ömmu greyinu. Ég ætla að njóta þess að hafa hann hér hjá mér í tvær vikur.

Herðu ég fór í bingó á Hofsósi í dag og vann tvisvar bingó. Annað skipti fékk ég aukavinnnig en hitt skiptið fékk ég vinninginn sem spilað var um. Ég græddi þvílíkt flott aðventuljós sem logar með flöktandi ljósum eins og kerti. Geggjað jólalegt... :D Pitsaveislu fyrir fjóra í Ábæ (þeir sem vilja koma með mér verða bara að láta mig vita...) og svo fékk ég shampoo, hárnæringu, handaáburð, krakkabol og krakkabolla. Þetta var bara skemmtilegt bingó fyrir utan ömurlegar kéllingar sem sátu á móti mér sem höguðu sér eins og fimm ára stelpur. Flissandi, síkjaftandi og púandi ooooohhhh... aftur og aftur þegar sagt var hvað átti að spila næst. Skammaðist mín að þurfa sitja hjá þeim.
jæja þetta er orðið gott í bil sæl að sinni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 22:40:41 / hallrun

Akureyrarferð

Hæ hæ
Það er lítið að frétta nema ég fór til Akureyrar í gær að hitta mömmu. Þar hitti ég Evu og Grétu, Hrönn og litla guttann hennar Gabriel Lúkas. Fórum líka í heimsókn til Ingu ömmu. Sýndi henni myndir úr sveitinni og hún ljómaði alveg.
Er að fara í skólann á morgun og skrifa undir verknámssamning. Svo er kannski Reykjarvíkurferð á laugardag. Fullt að gera hehe...
heyrumst...
bleble

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 15:45:45 / hallrun

Ég náði prófinu. jahú...

Vá nú er maður bara með spennufall dauðans... ég náði þessum áfanga púff... við sýndum hrossin fyrir eigendurna í morgun og önnur mín var miklu betri í dag en í prófinu en það er allt í langi. Eigendurnir voru allavegana mjög ánægðir.

jibbí jibbí jibbí...


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 22:07:36 / hallrun

Lokapróf frammundan

Þá er að nálgast í lokaprófið. Lokaæfing fyrir próf (inni) er á morgun. Prófið er á fimmtudag og föstudag og laugardag er sínt eigendunum hrossin sín.
Jæja ég varð bar að segja smá fréttir af mér því ég er svo léleg í að blogga. Er búin að vera að tilbúa dagbókina í kvöld sem ég á að skila á miðvikudag.
Er að fara að læra utan að prógrammið sem ég ætla að sína á morgun. Ég síni allar gangtegundir á annari merinni, hin er klárhrissa svo ég síni ekki skeið á henni. Á báðum merunum síni ég einnig krossgang, sniðgang á feti og á tölti. Afturfótasnuning og framfótasnuning.
jæja ég læt heyra í mér í vikunni hvernig gengur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:24:03 / hallrun

Ugla

Ég átti í nánum kynnum við uglu í kvöld. Hún hringsólaði fyrir ofan tíkina, Skoppu og settist á staur fyrir framan mig. Flaug svo tvo hringi fyrir ofan höfuðið á mér og settist tvo metra fyrir framan mig og horfði á mig. Geggjað flottur fugl. Hún flaug svo aftur að Skoppu og gargaði á hana. Settist svo á jörðina og var þar þrátt fyrir að ég var að hreyfa mig. Svo kom önnur ugla og þá fór þessi gæfa strax til hennar. Þær léku sér aðeins saman í loftinu og fóru svo. Geggjað að sjá þetta...  vildi að ég hefði getað tekið mynd af henni. En þá hefði ég líka hrætt hana með flassinu.
bless bless uglufan

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 12:58:19 / hallrun

Hver þekkir mig?

 Hver þekkir mig?

a.. Nafn mitt?
b.. Hvar kynntumst við?
c.. Hvað er miðnafnið mitt?
d.. Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
e.. Hversu vel þekkiru mig?
f.. Reyki ég?
g. Trúi ég á Guð?
h. Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
i. Aldur minn?
j.. Afmælisdagur?
k. Háralitur?
l. Augnlitur?
m. Á ég systkyni?
o. Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
p. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
q. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
r. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
s. Hver er minn besti eiginleiki?
t. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
u. Er ég fyndin/nn?
v. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
w. Einhverjir sérstakir hæfileikar?
aa. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá
vera?
ab. (ef þú ert af hinu kyninu) Höfum við kysst?
ac.. Hvað heldurðu að verði um mig í
framtíðinni?
af. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?
ag.. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eig ieftir að giftast?
ah. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert
saman?
ai.. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
aj.. Ef þú gætir gert eða sagt eitthvað sérstakt við mig núna, hvað
mundi það vera?

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 12:55:08 / hallrun

Jólagjöfin í ár?

Ég er búin að hlaða inn nýjum handverksmyndum inn á myndir hér niðri vinstra megin. Kíkið og ath. hvort þið finnið ekki jólagjöfina í ár ;)

Mjöðmin er að lagast og ég var í einkakennslu núna fyrir hádegi á Hólum. Mjög fínt og hjálpaði mér að vita hvernig ég get bætt hrossin mín meira


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 14:50:56 / hallrun

Það er merkilegur dagur í dag

Jæja, nú hef ég ekkert betra að gera en að blogga þar sem ég ligg farlama upp í sófa á verkjatöflum. Mins hrundi nefninlega tvisvar af baki í gær. Þetta var hreint og beint örmurlegt. Ég var að sýna meri sem ég er búin að vara með í tæpa tvo mánuði í þjálfun. Þvílíkt skapstór meri sem er búin að vera mjög erfið en ekki hegðar sér neitt eins og í gær. Hún hreint og beint rauk með mig og tók síðan tvær stungur og þar með var ég flogin, fór á hana aftur og þá hrekti hún þar til ég flaug aftur. Hún náði mér samt ekki af í þriðja skiptið þar sem ég fór inn í lítið gerði. Hræðilegt, ömurlegt... skítt með mig að ég var labbandi á einum fæti eftir þetta. Það er bara hræðilegt að þurfa að skila merinni til eigandanna þegar hún hegðar sér eins og fífl.

Skólinn gengur vel. Það var skyndipróf hjá okkur í morgun á þjálfunarhestunum til að ath. hvernig staðan væri á hrossunum hjá okkur. Einkuninnar sem við fáum út úr því er 0 þá er það viðunandi + þá er það betra en - þá er það verra. Toni sagði að andlegi hlutinn hjá hrossunum væri góður hjá okkur í C hóp en krossgangur og opin sniðgangur væri hreint ömurlegur hjá okkur. Annars fengum við ekki að vita neitt meira um það. Ámorgun fáum við hver og ein öruglega yfirlísingu hvað við þurfum að bæta og laga hjá okkur sjálfum og hrossunum.

Laufskálaréttir voru frábærar. Indislegt veður. Það er verst að ég hitt Bjarkey bara þegar ég var að flíta mér að fara með hrossin í haga eftir að við komum niður úr dalnum. Svo sá ég hana ekkert meir. Ég komst ekki einu sinni einn hring í kringum réttina, rétt svona hálfan. Réttirnar voru mjög fljótar að líða en löng biðin að geta farið að ríða heim í Brimnes með stóðið. Biðum öruglega í 2 tíma. Þegar heim var komið var farið að slátra nauti og það tók sinn tíma þannig maður var orðinn örþreyttur og slæptur. Mig langaði nú samt að kíkja á ballið en ég var farlaus heima í sveit og fór því bara að sofa fljótlega. Það var bara fínt því maður vaknaði hress á sunnudeginum.

Afi fór í aðgerð í gær morgun og lét skipta um augastein í sér. Aðgerðin gékk vel og hann þurfti ekki einu sinni að vera með lepp fyrir auganu. Þau hjónin eru búin að vera fyrir sunnan í heila viku og ég er því búin að vera ein hér í kotinu á meðan.  Mér heirist nú á afa að first að aðgerðin sé búin vilji hann fara að drífa sig norður. Þó að það sé annað mál en bíllinn minn er bilaður og því er ég búin að fara tvisvar á afa bíl í skólann. Svo er ég með hnakkinn minn í viðgerð á króknum og því er ég að nota hnakkinn afa. Svo datt ég í gær á mjöðmina og gat ekki stigið í annan fótinn nema að nota stafinn hans afa. Ég var nú farin að hlægja að þessu í gær. :D

En aðalfréttirnar sem ég ætlaði að skrifa hér og nú er að Hlíf mín kæra systir gékkst undir keisara í morgun og er búin að eiga strák. Það tókst vel en Hlíf þarf að sofa næstu þrjá sólahringana áður en maður getur farið að tala við hana. Frábært, frábært, frábært. Til hamingju systa... Nú get ég ekki beðið að komast til þín og knúsa ykkur öll. :D

gott í bili bleble.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4